|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
Í dag laugardaginn 3. desember var árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Pakkhúsinu. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu árin og hefur myndast seinni árin sú hefð hjá Kiwanisklúbbnum Ós að selja lakkrís frá Sælgætisgerðinni Freyju á Höfn. Mættu nokkrir félagar til að selja lakkrís.
Handverk, hönnun og matur úr Ríki Vatnajökuls voru áberandi á markaðnum eins og síðustu ár en einnig var hægt að kaupa sér góðgæti á staðnum og kakó og jólaglögg.
Jólamarkaðurinn er kjörið tækifæri til að finna eitthvað í jólapakkann eða á veisluborðið og auðvitað til þess að koma sér í jólaskapið.

|
|
|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Laugardagur, 03. desember 2011 18:54 |
|
Mica jólatrjáasérfræðingur er komin á fullt skrið með að höggva stóru jólatré. Búið er að setja upp jólatré vítt og breitt um bæinn. Fékk Mitca vaska félaga sína í Kíwanisklúbbnum til að aðstoða sig í að setja upp trén og skreyta þau. Geta bæjarbúar dáðst að trjánum sem koma frá Araseli og úr Einarslundi. Félagar eru ávallt tilbúnir að höggva tré ef þarf að grisja á svæðum í Austur-Skaftafellssýslu. Og ekki er verra að þau nýtast til að gleðja börnin á Höfn. Allur ágóði af sölu jólatrjáa hjá Kiwanisklúbburinn Ós rennur í styrkjajóð klúbbsins. Um miðjan desember byrja Kiwanismenn að selja jólatré fyrir alla Hornfirðinga og endar salan á Þorláksmessu.
Jólasnjórinn á rjúpuslóðum |
|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Laugardagur, 03. desember 2011 18:13 |
|
Jólahlaðborðsveisla haldin á Hótel Héraði Egilstöðum
Mikil jólahlaðborðsveisla var haldin á Egilsstöðum helgina 25. - 27. nóvember. Viðstaddir voru 19 félagar og makar. Mættu nokkrir félagar strax á föstudeginum og skoðu þeir bæinn í miklum fimbulkulda. Bærinn er orðinn vel skreyttur og jólalegur. Strax um kvöldið var létt æfing uppá herbergjum fyrir hlaðborðskveldið.
Daginn eftir fóru einhverjir að svipast um eftir rjúpum með misjöfnum árangri en aðrir skoðuðu í búðir. Þegar líða tók á daginn var hittingur á herbergjum og svo skundað niður í fordrykkinn Mohitos. Hlaðborðið var hlaðið kræsingum og borðuðu sumir meira en góðu hófi gengdi og plássið var orðið lítið þegar kom að eftirréttunum. Áður en haldið var heim á leið skellti hópurinn sér í brunch hlaðborð og gaf það jólahlaðborðinu lítið eftir. Þeir félagar sem fóru eru einróma sammála um að þessi ferð hafi tekist einstaklega vel og ekki spillti fyrir að Öxi var fær sem á sumardegi.
Formaður og frú í góðum gír. |
|
|
|
|
|
|
síða 2 af 11 |