Stjórnarskipti 2011-2012
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Miðvikudagur, 02. nóvember 2011 21:35
Miðvikudagskvöldið 2. nóvember voru stjórnarskipti hjá Kiwanisklúbbnum Ós. Guðjón Pétur forseti Óss setti fundinn. Því næst kynnti Haukur Sveinbjörnsson nýjan félaga Sigurjón Örn Arnarson  sem síðan gekk í klúbbinn.  Meðmælendur voru Stefán Jónsson fyrrverandi svæðisstjóri Sögusvæðis og Geir Þorsteinsson kjörforseti. Stefán tók að sér í fjarveru svæðistjóra Sögusvæðis að setja inn nýja stjórn og eru einu breytingar á stjórninni að fyrrverandi ritari verður kjörforseti en það er Geir Þorsteinsonog og að nýr ritari er Sigurður Einar Sigurðsson. Mjög góð mæting var á fundinum, 16 félagar og 2 gestir.
Nyr_felagi_tekinn_innNýr félagi tekinn inn í klúbbinn.
Nya_stjornin_2011_2012Nýja stjórnin 2011-2012.
Stjorn_2010-2011Gamla stjórnin 2010-2011.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. nóvember 2011 23:26
 
Þingsetning umdæmisþings 2011
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Sunnudagur, 25. september 2011 21:01
Setning 41. umdæmisþings Ísland-Færeyjar fór fram við hátíðlega athöfn í Hafnarkirkju á föstudagskvöldið að viðstöddu fjölmenni. Þar tóku til máls m.a umdæmisstjóri, bæjarstjóri Hornafjarðar, erlendir gestir og séra Baldur Kristjánsson blessaði samkomuna og hvatti Kiwanismenn til góðra verka. Nemendur Tónskólans sáu um fjölbreytt tónlistaratriði við góðar undirtektir þinggesta. Einnig tilkynnti Björn Ágúst formaður styrktarsjóðs að ákveðið hefði verið að sjóðurinn gæfi ásamt Kiwanisfjölskyldu Íslands - Færeyja  heyrnamælingartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og veitti Jóna Bára skólahjúkrunarfræðingur gjöfinni viðtöku.
Að lokinni setningu buðu Ós Kiwanisfélagar til fagnaðar í Nýheimum, þar var fólki skemmt með harmonikuspili og ljúfum Ós miði.
Gestir voru ánægðir með móttökur á Hornafirði og sögðu Ósfélaga gestrisna með afbrigðum eins og reyndar alla íbúa Hornfjarðar. Mynd  frá Kiwanis.is
thingsetning_hofn
Síðast uppfært: Sunnudagur, 25. september 2011 22:25
 
Frumurnar fá styrk frá Kiwanisklúbbnum Ós
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Föstudagur, 20. maí 2011 18:49
Afhentur 120.000 kr styrkur til Legóhópsins Frumurnar - The Cells. Hægt er að fylgjast með hópnum á slóðinni

http://frumurnar.blog.is/

alt

 

 

 
Fleiri greinar...


síða 3 af 11

RSS straumar

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Innskránig



 
Borði