Sala á K-lykli lokið
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Föstudagur, 20. maí 2011 18:16

Sala á K – lyklinum sem er ætlaður til styrktar geðsjúkum seldist vel. Salan fór fram í Miðbæ Hornafjarðar og í fyrirtækjum á svæðinu og einnig sá Lego hópurinn um að ganga í hús og selja lykilinn. Seldir voru um 430 lyklar og má segja að fimmti hver Austur-Skaftfellingur hafi keypt K-lykil, miðað við höfðatölu. Lego hópurinn hlaut styrk upp á 120.000 krónur frá Kiwanisklúbbnum Ós fyrir að selja lykilinn, verður það gott fararnesti fyrir heimsmeistaramótið í Legókeppni sem fer fram í Delft Hollandi í byrjun júní, sjá link http://www.flloecdelft.org/

Kiwanisklúbburinn Ós þakkar íbúum fyrir frábæra móttöku vegna sölunnar á K – lyklinum og Húsasmiðjunni fyrir að smíða lykla endurgjaldslaust.

K-tengil að störfum

 Kiwanis menn að selja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Litlu börnin vildu líka kaupa K-lykil

Síðast uppfært: Laugardagur, 03. desember 2011 21:05
 
Hjóladagur 2011
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Föstudagur, 20. maí 2011 17:44
Börnin bíða spennt
Hjálma afhending Kiwanisklúbbsins Ós fór fram við Íþróttahúsið  laugardaginn 14 maí .Mæting var að venju góð bæði hjá börnum og foreldrum þeirra.
Einnig voru á staðnum lögreglan sem sá um að útskýra notkun hjálma fyrir börnunum, en þeir buðu líka upp á hjólaþrautir fyrir börnin eftir að öll hjól voru yfirfarin. Slysavarnarkonur sáu um veitingar og buðu upp á kleinur, ávexti og Svala.
Allir hressir
Forseti Kiwanisklúbbsins Ós vill þakka öllum félögum sem komu að hjálmaafhendingunni og einnig slysavarnarkonum og lögreglu Hornafjarðar.


Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. desember 2011 22:00
 
K dagur 10 - 14. maí 2011
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson   
Þriðjudagur, 12. apríl 2011 18:53

K-lykillDaganna 10. -14 maí mun Kiwanishreyfingin á Íslandi selja K-lykilinn til styrktar geðheilbrigðismála.

K lykillinn er að þessu sinni alvöru lykill sem passar í meirihluta allra ASSA skráa á landinu hann er óskorinn, en meðan á sölu stendur mun Húsasmiðjan á Höfn skera lyklana að kostnaðarlausu. 

Kiwanis klúbburinn Ós mun standa að sölu lykilsins hér á svæðinu, með aðstoð frá foreldrum og börnum 7. bekkjar (eru þau að safna fyrir Vestmannaeyjaferð og fyrir Lego First meistarakeppni í Hollandi fyrir Íslands hönd) og fá þóknun fyrir að selja K-lykilinn.

Verður gengið í hús á Höfn og Nesjum, ennfremur munu félagar bjóða K-lykillinn í verzlunarkjarnanum Miðbæ dagana 10-14 maí seinni part dags.

Síðast uppfært: Mánudagur, 30. maí 2011 10:10
Nánar... [K dagur 10 - 14. maí 2011]
 


síða 4 af 11

RSS straumar

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Innskránig



 
Borði