Svæðisráðsstefna á Selfossi
Skrifað af: Administrator   
Laugardagur, 19. desember 2009 19:12

Boðað var til svæðisráðsstefnu á Selfossi

Við Ós menn lentum í því óláni að vera fjarverandi á svæðisráðsstefnunni á Selfossi sem við vorum að leggja á stað á laugardaginn 21. nóvember. Raunin var sú að ráðstefnan var föstudaginn 20. nóvember, en einhver misskilningur var í boðun fundarinns, en við fengum fyrir því staðfestu þegar svæðisstjóri hringdi um 1/2 tíma í brottför hjá okkur á laugardeginum og sagði forseta að hann hefði saknað Ós manna á svæðis ráðstefnunni kvöldið áður.

Okkur Ós mönnum þykir þessi misskilningur ákaflega leiður,og hefðum svo sannarlega viljað að málin hefðu farið á annan veg en við því er ekkert að gera. En skýrslu Ós má finna hér á vefnum hjá okkur.

 
Lúlla veitt viðurkenning
Skrifað af: Stefán B. Jónsson   
Laugardagur, 19. desember 2009 14:43

Á dögunnum flutti Lúlli okkar suður í sollinn. Lúlli og Ásgeir með viðurkenningar skjöldinn

Það bar frekar brátt að Lúlli (uppnefnefndur Ludwig H. Gunnarsson) fékk vinnu í Reykjavík, en hann er búinn að stefna þangað á annað á og er nokkuð síðan að kona hans Gunna (stundum nefnd Guðrún Jónsdóttir) flutti suður og hóf stöf þar.

Lúlli er einn af stofn félögum klúbbsins og hefur séð um tryggingarsjóð í 22 ár , ásamt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn. Það er ekki hægt annað en kveðja slíka máttarstólpa klúbbs með viðeigandi hætti.

Nánar... [Lúlla veitt viðurkenning]
 
Vetrar starfið hafið
Skrifað af: Stefán B. Jónsson   
Mánudagur, 21. september 2009 00:00

Nú eru félagar komnir af þingi og farnir að funda. Næst eru stjórnarskipti þar sem við munum gera okkur glaða kvöldstund með mökum og gestum.

Félagar horfa björtum augum til vetrarins með góðum fundum og skemmtunum, veturinn verður góður með mörgum gefand verkefnum sem félagar leysa af stakri ljúfmennsku.

Í vetur sendur uppá okkur félagana að endurgjalda myndarlega heimsókn félaga okkar úr Eldborg í Hafnarfirði, sem heimsóttu okkur myndarlega á 20 ára afmæli okkar, en nú eiga þeir 40 ára afmæli þennan veturinn. Eru félagarnir strax farnir að skipuleggja ferðina í Hafnarfjörðinn.

 
Fleiri greinar...


síða 6 af 11

RSS straumar

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Innskránig



 
Borði