|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Föstudagur, 27. janúar 2012 00:00 |
Kiwanisklúbburinn Ós ákvað að breyta til á nýju ári og færa sig á nýjan fundarstað. Ákveðið var að skreppa inní sveit á Hótel Jökul í Nesjum en forseti okkar rekur það hótel undir merkjum Edduhótelana á sumrin. Á fyrsta fundi klúbbsins lýstu félagsmenn almennri ánægju á aðstöðunni og uppsetningu á munum klúbbsins. Þó er vitað að til eru fleiri munir og ætla félagsmenn að koma og bæta þeim í aðstöðuna. Á fyrsta fundii klúbbsins var boðið uppá ungverska gúllassúpu en það var forseti klúbbins Guðjón Pétur Jónsson sem sá um eldamennskuna og hafði sér til aðstoðar stjórnarmenn.

Brosandi fráfarandi forseti

Sumir fóru margar ferðir.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 27. janúar 2012 10:05 |
|
|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Föstudagur, 20. maí 2011 17:44 |
|
Hjálma afhending Kiwanisklúbbsins Ós fór fram við Íþróttahúsið laugardaginn 14 maí .Mæting var að venju góð bæði hjá börnum og foreldrum þeirra.
Einnig voru á staðnum lögreglan sem sá um að útskýra notkun hjálma fyrir börnunum, en þeir buðu líka upp á hjólaþrautir fyrir börnin eftir að öll hjól voru yfirfarin. Slysavarnarkonur sáu um veitingar og buðu upp á kleinur, ávexti og Svala.
Forseti Kiwanisklúbbsins Ós vill þakka öllum félögum sem komu að hjálmaafhendingunni og einnig slysavarnarkonum og lögreglu Hornafjarðar.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. desember 2011 22:00 |
|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Þriðjudagur, 12. apríl 2011 18:53 |
Daganna 10. -14 maí mun Kiwanishreyfingin á Íslandi selja K-lykilinn til styrktar geðheilbrigðismála.
K lykillinn er að þessu sinni alvöru lykill sem passar í meirihluta allra ASSA skráa á landinu hann er óskorinn, en meðan á sölu stendur mun Húsasmiðjan á Höfn skera lyklana að kostnaðarlausu.
Kiwanis klúbburinn Ós mun standa að sölu lykilsins hér á svæðinu, með aðstoð frá foreldrum og börnum 7. bekkjar (eru þau að safna fyrir Vestmannaeyjaferð og fyrir Lego First meistarakeppni í Hollandi fyrir Íslands hönd) og fá þóknun fyrir að selja K-lykilinn.
Verður gengið í hús á Höfn og Nesjum, ennfremur munu félagar bjóða K-lykillinn í verzlunarkjarnanum Miðbæ dagana 10-14 maí seinni part dags.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 30. maí 2011 10:10 |
|
Nánar... [K dagur 10 - 14. maí 2011]
|
|
|
Skrifað af: Grétar Vilbergsson
|
|
Sunnudagur, 03. apríl 2011 16:32 |
Félögum í Ós hefur borist eftirfarandi tilboð í ferð á afmækishátíð klúbbanna í Færeyjum. 
Ferðin er með frejunni Smyrli frá Seyðisfirði og aftur til baka þangað.
- Verð á mann er 119.800- kr. með innfalinni gistingu í 2 manna kelfa um borð, 4 nætur á HótelFæreyjum með kvölverði 3 nætur (fjórði kvödverðurinn er í hátíðar veislunni).
- Verð fyrir bíl farm og til baka er 30.400 og getur þá deilst á þá sem vilja deila bíl.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 30. maí 2011 10:36 |
|
Skrifað af: Stefán B. Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 01. apríl 2010 11:15 |
Árlegt páskaeggja bingó Kiwanisklúbbsins Ós. Páskaeggja bingóið verður haldið að venju á skírdag í Nýheimum. Verða mörg glæsileg páskaegg í boði fyrir heppna bingó spilarara. Vonast Kiwanismenn til að sjá sem flesta koma og gera sér glaðan dag og reyna að vinna egg.
Sælgætisgerðin Freyja styrkir kúbbinn með eggin í ár, eins og í fyrra, en þau hafa þótt mjög ljúffeng.
Að venju er verði spjalda stillt í hóf eð 700 kr. spjaldið, og léttur páskaleikur í fyrirrúmi.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 31. ágúst 2011 14:11 |
|
|
|
|
|
|
síða 1 af 6 |