| Aðventan nálgast |
|
|
| Skrifað af: Gestur Halldórsson | |||
| Mánudagur, 24. nóvember 2008 21:16 | |||
|
Nú þegar aðventan nálgast og jólaljósin lýsa upp glugga okkar og hús hugsum við til þeirra sem minna mega sín í okkar samfélagi. Spenningur hleðst upp hjá okkar börnum og ekki síður hjá okkur sem eldri erum við skreytum hús og hýbíli okkar sem mest við megum. Gleymum ekki þeim sem hafa minna á milli handana og geta ekki skreytt eins og margur annar og kvíða jafnvel svolítið fyrir okkar stærstu hátíðir sjálfri jólahátíðinni. Nú fer sá tími að ganga í garð að við Kiwanismenn förum að selja okkar jólatré allur okkar ágóði af sölu jólatrjáa fer til þeirra sem minna mega sín í okkar samfélagi, og til að reyna að gleðja þá og hjálpa. Göngum hægt um gleðinar dyr nú í byrjun aðventu, reynum að vera glöð og gleðjum okkur og alla aðra. Gleðilega aðventu.
|
|||
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 26. nóvember 2008 12:58 |