| Hjóladagur 2011 |
|
|
| Skrifað af: S. Einar Sigurðsson | |||
| Föstudagur, 20. maí 2011 17:44 | |||
![]() Hjálma afhending Kiwanisklúbbsins Ós fór fram við Íþróttahúsið laugardaginn 14 maí .Mæting var að venju góð bæði hjá börnum og foreldrum þeirra.
Einnig voru á staðnum lögreglan sem sá um að útskýra notkun hjálma fyrir börnunum, en þeir buðu líka upp á hjólaþrautir fyrir börnin eftir að öll hjól voru yfirfarin. Slysavarnarkonur sáu um veitingar og buðu upp á kleinur, ávexti og Svala.
![]() Forseti Kiwanisklúbbsins Ós vill þakka öllum félögum sem komu að hjálmaafhendingunni og einnig slysavarnarkonum og lögreglu Hornafjarðar.
|
|||
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. desember 2011 22:00 |