| K dagur 10 - 14. maí 2011 |
|
|
| Skrifað af: S. Einar Sigurðsson | |||
| Þriðjudagur, 12. apríl 2011 18:53 | |||
|
K lykillinn er að þessu sinni alvöru lykill sem passar í meirihluta allra ASSA skráa á landinu hann er óskorinn, en meðan á sölu stendur mun Húsasmiðjan á Höfn skera lyklana að kostnaðarlausu. Kiwanis klúbburinn Ós mun standa að sölu lykilsins hér á svæðinu, með aðstoð frá foreldrum og börnum 7. bekkjar (eru þau að safna fyrir Vestmannaeyjaferð og fyrir Lego First meistarakeppni í Hollandi fyrir Íslands hönd) og fá þóknun fyrir að selja K-lykilinn. Verður gengið í hús á Höfn og Nesjum, ennfremur munu félagar bjóða K-lykillinn í verzlunarkjarnanum Miðbæ dagana 10-14 maí seinni part dags. K- Dagurinn
Þessi hugmynd er síðan að þróast næstu mánuðina og kemur síðan fram sem fullmótuð tillaga. Í framhaldi ákveður Kiwanishreyfingin að halda K-dag 18. október 1974, undir kjörorðunum ,,Gleymum ekki geðsjúkum". Á þeim degi gengu Kiwanismenn ásamt aðstoðarfólki á fund landsmanna og seldu barmmerki, Kiwanis-lykilinn, til styrktar geðsjúkum. Ágóði af þessum fyrsta K-degi rann til húsnæðis og til tækjakaupa fyrir Bergiðjuna, sem er verndaður vinnustaður við Kleppsspítala. Framhaldið er þekkt, K-dagur er orðin fastur liður í Kiwanisstarfinu þriðja hvert ár og kjörorðið ,,Gleymum ekki geðsjúkum" þekkja allir landsmenn. Tilgangur með K-degi er ekki aðeins að safna fé, heldur einnig að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni geðsjúkra. Í grein sem Tómas Helgason, geðlæknir, skrifar fyrir K-dag 1983, kemur m.a. fram: "Kiwanisklúbbarnir á Íslandi ætla nú í fjórða sinn að beita sér fyrir landssöfnun til þess að stuðla að endurhæfingu geðsjúkra. Framtak þeirra hefur verið til ómetanlegs gagns. Annars vegar hefur það fé, sem þeir hafa safnað, komið að beinum notum til starfs- og heimilisendurhæfingar sjúklinganna. Hins vegar hafa þeir vakið athygli alþjóðar á vanda stærsta öryrkjahópsins, þess hóps sem á erfiðast með að tala fyrir sig sjálfur, vegna veikinda sinna og vegna þeirra fordóma sem gætt hefur í þeirra garð. Lykillinn sem Kiwanismenn hafa selt í fjáröflunarskyni, hefur verið tákn þess sem þeir vilja leggja af mörkum til að eyða þessum fordómum og til að rjúfa einangrun hinna geðsjúku".--
|
|||
| Síðast uppfært: Mánudagur, 30. maí 2011 10:10 |