| Kiwanisklúbburinn Ós og Nettó veita styrki í samstarfi við Félagsþjónustu Hornafjarðar |
|
|
| Skrifað af: S. Einar Sigurðsson | |
| Föstudagur, 27. janúar 2012 00:00 | |
|
Félagsmálayfirvöldum Hornafjarðar hefur borist gjafabréf að upphæð fjörgurhundruð þúsund krónur. Gefendurnir eru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 300 þúsund krónur og Nettó sem bætti við 100 þúsund krónum. Fyrir þessa upphæð eru útbúin gjafakort sem dreift er til fjölskyldna sem eiga erfitt um hátíðarnar.
Kjörsforseti Kiwanisklúbbsins Óss Geir Þorsteinsson ásamt ritaranum Sigurði Einari Sigurðssyni og Pálma Guðmundssyni verslunarstjóra í Nettó afhentu Jóni Kristjáni félagsmálafulltrúa gjafabréfin með þeirri ósk að þeim verði dreift til þeirra heimila þar sem hjálpar er þörf. Einnig var Kristján V. Björgvinsson rekstrarstjóri Húsasmiðjunar á Höfn viðstaddur en Húsasmiðjan styrkir jólatréssöluna með fríum flutningi á innfluttu jólatrjánum. Ein af mörgum fjáröflunarleiðum Kiwanisklúbbsins Óss er sala á jólatrjám og er þessi gjöf ágóði hennar. Einnig selja Ósmenn úrvals lakkrískonfekt sem framleitt er hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn. Jólafuru trén sem eru seld koma öll úr skógræktinni úr Steinadal í Suðursveit, nema normannsþinurinn sem fluttur er inn frá Danmörku. Ennfremur eru seld friðarkerti til styrktar Hjálparstofnun kirkjunnar.
. Félagar í Kiwanisklúbbnum Ós óska öllum Austur-Skaftfellingum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
|
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 27. janúar 2012 10:02 |