| Lakkríssala á jólamarkaði |
|
|
| Skrifað af: S. Einar Sigurðsson | |||
|
Í dag laugardaginn 3. desember var árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Pakkhúsinu. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu árin og hefur myndast seinni árin sú hefð hjá Kiwanisklúbbnum Ós að selja lakkrís frá Sælgætisgerðinni Freyju á Höfn. Mættu nokkrir félagar til að selja lakkrís. Handverk, hönnun og matur úr Ríki Vatnajökuls voru áberandi á markaðnum eins og síðustu ár en einnig var hægt að kaupa sér góðgæti á staðnum og kakó og jólaglögg. Jólamarkaðurinn er kjörið tækifæri til að finna eitthvað í jólapakkann eða á veisluborðið og auðvitað til þess að koma sér í jólaskapið.
|