Lúlla veitt viðurkenning Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Stefán B. Jónsson   
Laugardagur, 19. desember 2009 14:43

Á dögunnum flutti Lúlli okkar suður í sollinn. Lúlli og Ásgeir með viðurkenningar skjöldinn

Það bar frekar brátt að Lúlli (uppnefnefndur Ludwig H. Gunnarsson) fékk vinnu í Reykjavík, en hann er búinn að stefna þangað á annað á og er nokkuð síðan að kona hans Gunna (stundum nefnd Guðrún Jónsdóttir) flutti suður og hóf stöf þar.

Lúlli er einn af stofn félögum klúbbsins og hefur séð um tryggingarsjóð í 22 ár , ásamt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn. Það er ekki hægt annað en kveðja slíka máttarstólpa klúbbs með viðeigandi hætti.

En vegna þess hvað Lúlli þyrlaðist allt í einu í burtu þá fór hann 3 dögum áður en við ætluðum að veita honum viðurkenningu fyr vel unnin störf í þágu Kiwanis klúbbsins Ós, þá þurftum við að bregða á óvenjuleg úrræði .

En eins og áður sagði nánast strauk Lúlli og notuðum við þá ferð sem farin var til að heimsækja vini okkar í Eldborg til að ná í skottið á Lúlla og kveðja. Forseti okkar Ásgeir og undirritaður Stefán sátu fyrir Lúlla í Smáralind og rændum honum á kaffihús þar sem við þökkuðum honum fyrir vel unnin störf og veittum honum viðurkenningu frá klúbbnum

 

Dagatal

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2
 
Borði