| Stjórnar skipti í Eyjum |
|
|
| Skrifað af: Stefán B. Jónsson | |||
| Miðvikudagur, 15. október 2008 19:04 | |||
|
Ós félagar héldu stjórnarskipti í eyjum með Helgafelli þann 4. okt. og var það mikil og skemmtileg upplifun fyrir þá sem þangað fóru.
Ferðalagið var nokkuð skrautlegt en félagar flugu til eyja frá Bakka í blíðskapar veðri um hádegis bil. Fram eftir degi naut fólkið verunar í eyjum og skoðuðu bæinn kaffihús og Kiwanis höll. Þegar leið að kvöldi var okkur boðið til veislu hjá Gísla forseta þar sem við nutum höfðinglegra veitinga í mat og drykk. Þaðan var farið í Kiwanis höllina til veislu. Eftir að njóta góðra veitinga um stund tók svæðisstjóri inn 15 nýja félaga í Helgafell sem er að lágmarki íslandsmet ef ekki bæði Evrópu og heimsmet. Þá var næst skipt um stjórnir í bæði Helgafelli og Ós. Að því loknu nutum við skemmtunar fram eftir nóttu og fóru jafnvel nokkir af okkur á hippa ball árla morguns.
En þá kom sunnudagurinn sem var heimferðar dagur og áttum við flug á Bakka kl. 13, en þá reyndist vera ansi misvindasamt á Bakka og ekki horfur á flugi þennan sunnudag, raunar ekki heldur mánudag eða þriðjudag. Þetta kallaði á ansi mikla breytingu á ferðalaginu, en það þýddi að fara með st. Ola til Þorlákshafnar og leigja þaðan rútu á Bakka þaðan sem síða var ekið heim og þangað komum við um kl. 2 aðfaranótt mánudags.
|
|||
| Síðast uppfært: Mánudagur, 10. nóvember 2008 18:21 |