| Svæðisráðsfundur í Eyjum |
|
|
| Skrifað af: Stefán B. Jónsson | |||
| Fimmtudagur, 01. maí 2008 11:43 | |||
|
Laugardaginn 26. apríl lögum við forseti Grétar og Stefán kjörsvæðisstjóri á stað á Eftir flug í um 5 mínútur (líklega í vara vélinni miðað við skröltið) lentum við í Eyjum þar sem Birgir svæðisstjóri tók á móti okkur. Þá héldum við í Kiwanis höllina í Eyjum og fengum við góðann túr um höllina (allat 3 hæðirnar) og verður að segjast að ekki er laust við að við höfum þótt okkar starf lítilmótlegt í þessum samanburði, en það er alveg ljóst að Helgafell er einn al öflugast klúbbur Evrópu og við erum stoltir að vera grannar þeirra og félagar. Um 12:30 buðu Helgafellsmenn upp á súpu og hófst fundurinn að því loknu. Fest fundamál voru frekar hefðbundin nema ef eitthvað er þá er útlit fyrir að það sé lítið svigrúm til að gera betur en Birgir sem svæðisstjóri. Þó kom fram tillaga að breyta svæðisráðsfundi í svæðisráðs hátíð það er að við búum okkur til gott kvöld með skemmtun í sömu ferð, en það yrði sjálfsagt til þess að auka kynningu og félagsskap klúbbana til muna og gera ferðalögin meira virði. Þessi tillaga átti mikinn meðbyr og mun það verða mitt hlutverk á næsta ári að reyna að koma henni í framkvæmd. Í lok fundar notaði Grétar ferðina til að færa Helgafells mönnum síðbúna afmælisgjöf frá Ós. Hafði hann um það þau orð að við færum aðra leið en klúbbarnir sem færðu okkur myndir af sínum heima byggðarlögum en frá okku fengju þeir útsýnið frá okkur. Um hálf fjögur fórum við félaga í loftið og héldum á stað heim. Forseta til mikillar hrellingar stóð hann kjörsvæðisstjórann að smygli á Kiwanis bjór frá Eyjum sem ekkert var við að gera annað en að drekka sönnunargögnin. Það reyndist hins vegar hafa þær afleiðingar að nokkuð oft þurfti að stoppa vegna flóðvarna, en stóru dekkin hjá Grétari voru ekki í nógu góðu jafnvægi og skalf bíllinn þess vegna nokkuð sem hraðaði gegnum streymi ölsins. En til Hafnar vorum við komnir aftur um kl. 7 að kvöldi þykir þetta nokkuð vel sloppið í tíma fyrir þetta fundar ferðalag. Stefán B. Jónsson
|
|||
| Síðast uppfært: Mánudagur, 05. maí 2008 09:07 |