| Skemmti og nýliðaveiðikvöld Ós á Hótel Jökli |
|
|
| Skrifað af: Guðjón Pétur Jónsson | |
| Sunnudagur, 27. febrúar 2011 21:42 | |
|
Klúbburinn hélt heljarmikla veislu að Hótel Jökli föstudagskvöldið 25. febrúar síðastliðin. Hátíðin var skipulögð af skemmtinefnd og var hverjum félaga upp á lagt að bjóða eiginkonu sinni og að minnsta kosti einu pari þar sem karlinn væri líklegur til að ganga í klúbbinn. Við lögðum þetta upp með þeim hætti að um væri að ræða hátíðarfund með dagskrá sem líktist hefðbundinni dagskrá Kiwanisfundar. Dagskrá
Skemmtinefnd sá alfarið um eldamennsku, þjónustu og frágang að hátíð lokinni nema hvað féhirðir sá um barinn og að koma gestum til síns heima eftir herlegheitin. Í forrétt var skötuselur a la Haukur Óla formanns skemmtinefndar. Í aðalrétt voru fylltar andabringur að hætti Grétars Vilbergs hvorttveggja alveg frábært. Í stuttu máli sagt tókst þessi kvöldstund alveg frábærlega og öllum sem lögðu hönd á plóg til mikils sóma. Er ég sannfærður um að þetta á eftir að skila okkur fleiri félögum og ekki síst að skerpa á samheldni klúbbfélaga fyrir komandi átök við undirbúning Umdæmisþingsins. Forseti Ós Guðjón Pétur Jónsson
|
|
| Síðast uppfært: Sunnudagur, 27. febrúar 2011 22:22 |