|
Skrifað af: S. Einar Sigurðsson
|
|
Sunnudagur, 25. september 2011 21:01 |
Setning 41. umdæmisþings Ísland-Færeyjar fór fram við hátíðlega athöfn í Hafnarkirkju á föstudagskvöldið að viðstöddu fjölmenni. Þar tóku til máls m.a umdæmisstjóri, bæjarstjóri Hornafjarðar, erlendir gestir og séra Baldur Kristjánsson blessaði samkomuna og hvatti Kiwanismenn til góðra verka. Nemendur Tónskólans sáu um fjölbreytt tónlistaratriði við góðar undirtektir þinggesta. Einnig tilkynnti Björn Ágúst formaður styrktarsjóðs að ákveðið hefði verið að sjóðurinn gæfi ásamt Kiwanisfjölskyldu Íslands - Færeyja heyrnamælingartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og veitti Jóna Bára skólahjúkrunarfræðingur gjöfinni viðtöku. Að lokinni setningu buðu Ós Kiwanisfélagar til fagnaðar í Nýheimum, þar var fólki skemmt með harmonikuspili og ljúfum Ós miði.
Gestir voru ánægðir með móttökur á Hornafirði og sögðu Ósfélaga gestrisna með afbrigðum eins og reyndar alla íbúa Hornfjarðar. Mynd frá Kiwanis.is
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 25. september 2011 22:25 |